Sunday, March 08, 2009

Kjötmótið

Leit bara á þetta sem góða æfingu og fannst fínt að fá smá spark í rassinn. Menn mega alveg gera grín, en nauðsynlegt er samt að kanna sig öðru hvoru. Ég náði þó að vinna minn flokk. Náði ekki 140 kg í bekkpressunni og hafði ekki 240 kg í réttstöðulyftunni, enda var sennilega vitlaust á stönginni.

Hnébeygja: 180 kg
Bekkpressa: 135 kg
Réttstöðulyfta: 225 kg
Samtals: 540 kg

Þetta er auðvitað glataður árangur, en eins og fyrri daginn þá er lappastyrkurinn ekki kominn. Enda æfi ég bara með 100 kg á bakinu eins og frægt er. Það gengur bara betur næst.

Úrslit m.a:
Hér:
Hér:

Febrúar

Það tekur því kannski ekki að skrifa um æfingar í febrúar. Þær voru flestar léttar. Hins vegar tók eina æfinga var aðeins í áttina. Langaði að kanna mig. Notað að sjálfsögðu enga vafninga eða stálbrók.

Hnébeygja 140 kg 2x2
Réttstöðulyfta 200 kg 2x2

aukaæfingar....

Ég ákvað síðan að vera með á kjötmóti WPC í lok mánaðarins. Ætlaði ekki að keppa í beygjum nema ég ætti séns á að vinna flokkinn. Vissi að ég hefði ekki 200 kg nema að æfa almennilega.