Wednesday, May 23, 2012

WC

Ég æfi núna á WC (World Class) í sumar.  Þs frá mai fram í byrjun júlí.  Eftir þann tíma byrja ég svo aftur í "power".  Fer þá að taka 1-2 æfingar í Stevegym á viku.  Þau mót sem eru á dagskrá í haust eru tvö:

GPC World Bench Press & Powerlifting Championships 2012
Venu: Sports Hall, Bardejov, Slovakia ------------ September 17 to 22

2012 WPF World Championship Meeting and 14th Annual Congress Assembly

NOV 1-4, 2012, Aldershot, Hampshire GU12 4AS England     

Stefni á þessi tvö mót ef fjárhagurinn leyfir.  Fyrra mótið verður skyldumæting, því ég vil kíkja á félagana í GPC sambandinu. Keppa fyrst raw powerlifting, þar sem ég hef heimsmet að verja og kannski bæta við bekk í útbúnaði.  Seinna mótið er powerliftingkeppni og single lift í sama mótinu.  Sp. hvort verði af þessu móti, en Stevegym-menn stefna á að mæta til Englands.

Æfingarnar í WC hafa verið frekar léttar eftir Metalmótið í april.  Æfi alltaf einn, fjórum sinnum í viku.  Bæti nokkrum aukaæfingum við, tek td bara heigh bar hnébeygjur, raw og óvafinn, rétttstaðan er tekin beltislaus, án banda osf

Hnébeygjur:  Tek frá 80-140 kg nokkur reps, raw og beltislaus.
Bekkpressa:  Pumpa frá 80-125 kg nokkur reps, tek svo skábekk og öfugan skábekk, axlarpressur og handleggi.
Réttstöðulyfta:  Tek frá 120-180 kg raw, beltislaus á frontgripi.  Hita svo upp með power-clean og togi.

Hjóla um 20 mínútur í upphitun og syndi og tana eftir æfingar í Laugardalslauginni.  Í byrjun júlí verður svo svissað yfir í power-æfingar, eins og powerbeygjur, alvöru réttstöðu, þungan bekk og sloppabekk.

Fínt að hvíla sig aðeins og byggja upp grunn.  Hugsa auðvitað oft um að hvíla mig alveg á power, en langar samt mikið að taka þessi tvö mót áður en maður hættir að keppa.  Mun þó aldrei hætta að "æfa".